Fyrirvari: Þetta er óunnið handrit sem var unnið upp úr upptöku með vélrænum hætti. Fyrir nákvæmni, vinsamlegast hlustið á þáttinn sjálfan <3
Þáttastjórnandi: Helgi Sigurður Karlsson, atferlisfræðingur, sálfræðingur og kennari. Velkominn, Helgi.
Helgi: Takk fyrir, og takk fyrir að bjóða mér.
Þáttastjórnandi: Hvernig er best að fara að þessu eiginlega, að tala við börn?
Helgi: Já, það er stóra spurningin. En sem betur fer er ekki ómögulegt að svara henni. Það sem hjálpar okkur mest, fyrst og fremst, er að rækta rétt samskiptaform frá unga aldri, ekki byrja fyrst þegar barnið er orðið unglingur. En þá er ekki öll von úti; við getum alltaf lagað og staðið okkur betur. Það sem skiptir mestu máli er að hlusta, og það er stundum það sem við gleymum að gera sem fullorðin.
Þáttastjórnandi: En ef barnið eða unglingurinn hefur ekkert að segja?
Helgi: Ef hann hefur ekkert að segja, þá er kominn tími til að rækta heimilislífið og rækta samskiptin. Þú breytir því ekki á núll-einni. Samskipti og að tala saman eru hegðun sem þarf að þjálfa eins og allt annað.
Þáttastjórnandi: Þannig að spurningin „Hvernig var í skólanum?“ er hún bara röng?
Helgi: Hún er ekki endilega röng, heldur þarf að sýna þessu stöðugan áhuga og gera það reglulega. Þegar þú skýtur henni inn einu sinni þegar þú manst eftir því, eftir að það hefur verið mikið að gera í vinnunni, og hendir í unglinginn: „Hvernig var í skólanum?“ og hann segir: „Fínt,“ þá máttu búast við sambærilegu svari. Hann er eiginlega að segja: „Mitt líf er orðið mitt. Ég er með mínum vinahópi og þetta er orðinn annar veruleiki en ég og þú, pabbi.“ Ef þú vilt fá innsýn í þann veruleika verðurðu að gera meira en að spyrja bara hvernig hafi verið í skólanum.
Þáttastjórnandi: Hvað er trikkið? Þú ætlar að kenna okkur?
Helgi: Já, á ég að draga upp töfrasprotann núna? Trikkið er að rækta góð og regluleg samskipti, koma samskiptunum inn sem rútínu, spyrja opinna spurninga og tala reglulega. Og hér er eitt áhugavert: Ég fór í sálfræðina á sínum tíma vegna þess að ég tók eftir því, þegar ég var ungur maður, að ef foreldrar hætta ekki að vera stjórnendur á ákveðnum aldri og breytast í leiðbeinendur, þá missa þeir unglinginn sinn frá sér.
Þegar börnin eru yngri ert þú ljósið í lífi þeirra. Þú ert sá sem allt snýst um og allt sem þú segir skiptir máli. Ef við notum ekki þann tíma til að rækta samskiptin verður það erfiðara þegar fram líða stundir. En það er aldrei of seint. Byrjið bara góð og heiðarleg samskipti, setjist saman við eldhúsborðið, notið opnar spurningar, sýnið þolinmæði og endurtakið. Þegar þetta litla, sjaldgæfa augnablik kemur og barnið opnar á eitthvað mikilvægt, þá skiptir máli að bregðast rétt við.
Þáttastjórnandi: Þetta eru svakalega stórar ábyrgðir. Opnar spurningar og þessi litlu trikk, eins og: „Hvað var skemmtilegast í dag?“ eða „Hvað var áhugaverðast?“ en lítil trikk sem geta orðið eins konar lykill að lásnum?
Helgi: Það er góð leið til að koma ykkur af stað. En það þarf að endurtaka og spyrja dýpra. Þú þarft líka að undirbúa þig: Hvað er ég að fara að spyrja um? Vita eitthvað um skólastarfið, til dæmis, til að hjálpa barninu inn í samtalið. Þú getur ekki bara stokkið beint inn. Barnið þarf að finna að mamma og pabbi hafi áhuga á því sem er að gerast í skólanum. Ef þið sýnið reglubundinn áhuga á því verður barnið áhugasamara um að tala um það.
Þáttastjórnandi: Þannig að fyrsta svarið hjá fullorðna fólkinu er kannski bara: „Segðu mér meira“?
Helgi: Já, nákvæmlega. Setja hnefann undir hökuna og bara: „Tell me more. Segðu mér meira.“ Það er einmitt það sem ég mæli með: Sýnið barninu að þið hafið raunverulegan áhuga á því sem það er að tala um og viljið fá að vita meira. Endurtakið þetta og búist ekki við öllu í fyrsta skipti.
Þáttastjórnandi: En ef unglingurinn eða barnið segir bara: „Ég nenni ekki að tala um það“?
Helgi: Þá er það hans réttur. En þið þurfið sem foreldrar að meta hvort málið sem unglingurinn vill ekki tala um sé mál sem þarf að tala um. Þá er það önnur umræða.
Þáttastjórnandi: Og hvernig dílum við við það?
Helgi: Það er ekki eitt gilt svar við öllu. Þú verður að gefa mér nákvæmara dæmi.
Þáttastjórnandi: Segjum bara að eitthvað dramatískt gerist, eitthvað sem virkilega þarf að taka á í nærsamfélagi unglingsins.
Helgi: Eins og ég segi, og það sem ég vinn rosalega mikið með, er að hegðun er aldrei bara hér og nú. Hún hefur þróast í samskiptum þínum við barnið þitt yfir langan tíma. Þar á sér stað, í minni reynslu, það sem kallast ómeðvituð gagnkvæm mótun. Þegar þú segir eitthvað við barnið þitt hefur það áhrif á hvernig þú talar næst við barnið þitt, og öfugt.
Þáttastjórnandi: Ég ætlaði að spyrja þig um að skoða síma og samskipti sem fara fram í símum. Mælir þú með að skoða síma barnsins?
Helgi: Ekki án leyfis þess, nema það sé algjörlega nauðsynlegt vegna þess að áhættuhegðunin er orðin mjög alvarleg. Um leið og þú brýtur traust barnsins vinnurðu það ekkert svo auðveldlega til baka. Og ef þú getur ekki hlustað á erfiðan hlut sem barnið vill segja, heldur bregst við reiður, geturðu verið næsta viss um að barnið tali ekki um það við þig aftur.
Þáttastjórnandi: Það skiptir máli að halda ró sinni?
Helgi: Mjög miklu. Muna hver er fullorðni aðilinn, vera rólegur, nálgast málið af yfirvegun og láta frekar afleiðingar tala en æsing eða reiði. Æsingur og reiði virka ekki. Það er miklu betra að sleppa þeim og fara beint í skýrar afleiðingar.
Þáttastjórnandi: Talandi um æsing og reiði: PISA kom út á dögunum og þú ert að ræða það í grein á Vísi. Ertu að tengja saman streitu og mikið að gera, lítil samskipti og þar af leiðandi verri PISA-niðurstöðu?
Helgi: Já, ég er hræddur um það. Þetta er einn af mörgum þáttum, en ég held samt að þetta sé einn af þeim þáttum sem við þurfum að kafa betur í, og starf mitt hefur sýnt mér það. Við erum rosalega upptekin; allir eru uppteknir. Samfélagið hefur þróast þannig að allt snýst um að gera meira, ekki minna, og ekki um að njóta. Nú er ég náttúrlega að henda fram smá sleggjudómum, en þetta er það sem ég sé. Við erum stöðugt í lífsgæðakapphlaupi, ekki bara við vinnu heldur við að gera: „Ég verð að gera eitthvað úr mér. Ég þarf að verða stærri og meiri en ég er.“ Á sama tíma gleymum við kjarnanum í því sem við erum að gera.
Gæðatími með barninu þínu er ekki eitthvað aukaatriði. Hann er rosalega mikilvægur til að styrkja samskiptin við barnið. Eins og öðrum mikilvægum hlutum í lífinu þarf að gefa þessu góðan tíma til að viðhalda góðu og sterku sambandi við barnið sitt.
Þáttastjórnandi: Þannig að PISA er einhvers konar viðvörun?
Helgi: Ég myndi segja að PISA sé ákveðið varnaðarmerki. Við þurfum að hætta að fókusa alltaf bara á barnið. Við erum umhverfið, við foreldrarnir og kennararnir. Við ákveðum í hvaða umhverfi barnið á að blómstra. Ef umhverfið býður barninu ekki upp á að blómstra, til dæmis vegna þess að það eru mörg verkefni í skólanum og allir eru of uppteknir til að sýna því sem barnið er að gera áhuga, hrósa því, veita því athygli og sýna því: „Hér er markmiðið. Þetta er eitthvað sem ég er stoltur af að sjá þig gera,“ þá þurfum við að hugsa okkar gang.
Þáttastjórnandi: Helgi, eitt gott ráð áður en við missum þig: Eitt ráð sem foreldrar geta byrjað á strax í kvöld til að auka líkurnar á því að unglingurinn tali við þau þegar eitthvað bjátar á.
Helgi: Ég ætla ekki að segja beint hvernig eigi að fá unglinginn til að hlusta, heldur hvernig foreldrar geta staðið sig betur í uppeldinu: Talið saman og verið sammála sem foreldrar. Þetta er það fyrsta sem ég vinn með með öllum foreldrum. Ef þið eruð ekki sammála, hvernig ætlið þið þá að ala barnið ykkar upp? Það er fyrsta skrefið. Foreldrar verða að vera sammála í uppeldinu. Þetta er það fyrsta sem ég ræði við alla foreldra sem ég vinn með, til dæmis varðandi hegðunarvanda.
Þáttastjórnandi: Ég held að við verðum miklu betri feður eftir þetta. Helgi Sigurður Karlsson, atferlisfræðingur, sálfræðingur og kennari, kærar þakkir fyrir spjallið.
Helgi: Takk sömuleiðis fyrir að bjóða mér.